Who Knew er íslensk hljómsveit sem var stofnuð árið 2005 og hefur náð langt síðan þá, hljómsveitin spilaði m.a. á Hróarskelduhátíðinni og Iceland Airwaves á síðasta ári og hefur einnig komið mikið fram í Þýskalandi, Sviss, Austurríki og Frakklandi.

Strákarnir sendu út frá sér á dögunum nýtt myndband við lagið Echoes en myndbandið var tekið upp í Grasagarðinum og Fossvogsdal. Leikstjórn myndbandsins var í höndum Einars Baldvins, Hákon Pálsson sá um myndatökuna, það var Ármann Ingvi sem sá um pródúseringuna en hann er jafnframt söngvari hljómsveitarinnar og voru búningarnir í höndum á Myrru Leifsdóttur en myndbandið var framleitt af Pegasus.