Dont Follow Me er nýjasta lagið frá hljómsveitinni Free From The Shadow en hún var stofnuð í nóvember 2011. Hljómsveitin er skipuð af fjórum strákum á aldrinum fjórtán til sextán ára, þeim Victori Alexander sem er söngvarinn, Friðriki Önfjörð trommara, Sóloni Sveinssyni á gítar og loks er það Sigurður Sverrisson sem spilar á bassa.