Árni Jónsson eða Árni Jay eins og hann er kallaður er átján ára rappari og producer úr Fossvoginum. Hann byrjaði að smíða takta sumarið 2008 og fór svo að fikta við rapp í lok árs 2009.
Árni hefur produceað marga íslenska rappara en þar á meðal eru Kristmundur Axel, Bjarni J og Óli107.

Hugmyndin að laginu kom í lok seinasta árs og er hún byggð á týpíska vetrarþunglyndinu og af reynslu Árna af því sem hann hefur oft þurft að glíma við sjálfur ofan á þá erfiðleika sem hann er með fyrir.