Gísli Þór Ólafsson gengur undir listamannsnafninu Gillon og er Ást Á Internetinu nýjasta lagið sem hann sendir frá sér en það má finna á plötunni Næturgráum.
Platan sem kemur út í byrjun mars inniheldur níu lög sem Gillon hefur verið að vinna að undanfarin ár, en hún var tekin upp af Sigfúsi Arnari Benediktssyni í Stúdíó Benmen á Sauðárkróki.
Gillon hefur áður gefið út 5 ljóðabækur í eigin nafni, seinast Sæunnarkveðju – sjóljóð árið 2010 en Næturgárun er fyrsta platan sem hann gefur út.