Strákarnir í Bláum Ópal eru hvergi nærri hættir og voru að senda frá sér nýtt lag sem heitir Stúlkan. Það hefur verið mikið að gera hjá þeim Agnari Birgi, Franz Plóde, Pétri, og Kristmundi Axel undanfarna daga og hafa þeir verið að koma víðsvegar fram við miklar undirtektir.