Magnús Thorlacius er fjórtán ára Kópavogsbúi. Magnús er plötusnúður og  er einnig iðinn við að mixa lög saman.
Ég Er Farinn með Úlfi Úlfi er eitt af hans uppáhalds lögum og ákvað hann að láta slag standa og gerði frábært mix sem hefur fengið heldur betur góðar viðtökur. Ásamt laginu Ég Er Farinn inniheldur mixið lagið Anima með Tim Mason.