Ný plata með Mugison, Haglél er væntanleg í verslanir  1. október. Hægt er að hlusta á plötuna á heimasíðu hans Mugison.is , en þar er einnig hægt að kaupa miða á tónleika sem hann mun halda víða um landið á næstunni. Platan Haglél er fjórða platan frá Mugison en hennar hefur verið beðið lengi af aðdáendum hanns enda eru fjögur ár síðan að seinasta platan með honum, Mugiboogie kom út.