Sverrir Bergmann ætti að vera flestum kunnur en hann er með þekktari tónlistarmönnum þjóðarinnar.
Sverrir hefur gert sér að vana að mæta vikulega í þáttinn FM95BLÖ og taka cover af vinsælum lögum.
Nýjasta coverið hans Sverris er acoustic útgáfa af laginu Euphoria sem var sigurlag Eurovision keppninnar sem fór fram í lok maí.
Það er góður vinur Sverris, hann Halldór Gunnar sem er með honum í þessu lagi.