Starfsfólk Hamborgarafabrikkunnar með þeim Simma og Jóa í fararbroddi færa okkur jólalag sem gert var fyrir keppnina Geðveik Jól sem haldin var á SkjáEinum í gær.

Lagið sem heitir Geðveikt Fín Jól hét upphaflega I Gotta Feeling og þá í flutningi fjórmenninganna í hljómsveitinni The Black Eyed Peas.

Simmi og Jói eru þekktir fyrir að setja lög í sín búing en þar má nefna lagið Ai Se Eu Te Pego eða Mosa Mosa eins og þeir kusu að kalla það.