Nyxo - Get NakedNyxo samanstendur af Inga Þór Garðarssyni og Stefáni Atli Rúnarssyni, sem eru einnig stofnendur IceCold Studios sem hafa gert ein flottustu tónlistar- og stuttmyndamyndbönd landsins. Þessir ungu drengir hafa verið að pródúsa tónlist í nokkurn tíma og munu gefa út smáplötu á árinu.

Nýlega sendu þeir frá sér lagið Get Naked sem hefur fengið vægast sagt góðar undirtektir.

Leikarar í myndbandinu eru þau Karl Emil Karlsson og Álfrún Kolbrúnardóttir en myndbandið er tekið upp og unnið af þeim sjálfum.

Þú getur hlustað á Get Naked með þeim félögum í Nyxo hér fyrir neðan.