Ábreiðubandið - Mögnuð íslensk útgáfa af Hold On We're Going HomeAlla næstu föstudaga kemur Ábreiðubandið í heimsókn í morgunþátt Svala og Svavars á útvarpsstöðinni K100 og tekur “cover“ eða endurgerð af vinsælasta laginu á stöðinni hverju sinni.

Hér taka strákarnir ásamt Ármanni Ingva hreint ótrúlega útgáfu sem seint verður toppuð af laginu Hold On We’re Going Home sem rapparinn Drake gerði upphaflega, en það situr á toppi vinsældarlista k100 um þessar mundir.