Katy Perry - By The Grace of GodSöngkonan Katy Perry slóg öll met þegar hún kom fram í hálfleik á Super Bowl sem fór fram í byrjun mánaðarins en um 118.5 milljón manns í Bandaríkjunum horfðu á atriðið hennar sem er met í áhorfi á viðburðinn.

Nýjasta smáskífan frá Katy nefnist By The Grace of God og flutti hún það fyrst opinberlega á Grammy verðlaunahátíðinni sem fór fram á sunnudaginn, en lagið má finna á plötunni Prism sem kom út í lok árs 2013.