Cascada - ReasonÞýski hópurinn Cascada með söngkonunni Natalie Horler í fararbroddi er án efa þekktastur fyrir lagið sitt Everytime We Touch sem kom út árið 2007 og var gríðarlega vinsælt á þeim tíma.

Cascada hafa verið að vinna í nýju efni undanfarið en ákváðu að taka forskot á sæluna og gefa út lagið Reason sem upphaflega átti að koma út árið 2004 og þá undir nafni hópsins Diamond en aldrei varð úr formlegri útgáfu lagsins fyrr en nú, um það bil ellefu árum síðar.