MØ - KamikazeDanska söngkonan Karen Marie Ørsted  sem gengur undir listamannsnafninu MØ er búin að vera í bransanum frá árinu 2012 en hún sló svo sannarlega í gegn í laginu Lean On sem kom út fyrr á þessu ári.

MØ vinnur nú að gerð annarar plötu sinnar sem lítið vitað er um eins og er, en nýjasta lagið sem hún sendir frá sér nefnist Kamikaze og var það pródúserað af Diplo, en hann er jafnframt einn af meðlimum Major Lazer sem gerðu meðal annars hið vinsæla Lean On.