Ester Indriðadóttir er þrettán ára Sauðkræklingur. Hún notar frítíma sinn í að syngja, spila á píanó og vera á skíðum þegar að færi gefst. Hún hefur sungið frá þriggja ára aldri og komið víða fram m.a. á Frostrósatónleikum og með skólakór en hún hefur einnig sungið inn á jóladiska sem að afi hennar gerði.