Rapparinn Rex og norska poppstjarnan Atle Pettersen með glænýtt myndband við lagið Amazing, en myndbandið var tekið upp í Atlantic Studios á Ásbrú á Íslandi.
Gus Ólafsson leikstýrði myndbandinu en sjálfur Haffi Haff er listrænn stjórnandi þess. Það var svo auglýsingastofan Pipar/TBWA sem sá um upptökur og vinnslu á myndbandinu.