Sædís Sif Jónsdóttir skellti sér í stúdíó á dögunum og tók upp sitt fyrsta lag. Lagið Jailhouse Rock með Elvis Presley varð fyrir valinu en það er eitt af hennar uppáhalds lögum.
Sædís sem notar hvert tækifæri sem gefst í að syngja fékk áhugann á Elvis vegna þess að pabbi hennar hlustaði mikið á hann í bílnum þegar að fjölskyldan fór í ferðalög innanlands.