Gabríel – Sólskin ásamt Opee og Unnsteini Manuel
Það nýjasta frá hinum grímuklædda Gabríel sem kýs að fara huldu höfði og ekki gefa upp sitt raunverulega nafn. Gabríel sendi frá sér lagið Stjörnuhröp í febrúar og hefur það náð ansi miklum vinsældum hér á landi.
Hér er Gabríel mættur með sitt annað lag og heitir það Sólskin ásamt honum Unsteini Manúel úr hljómsveitinni Retro Stefson og rapparanum Opee sem var í Quarashi á sínum tíma.
Til gamans má geta að þeir koma allir fram á stærsta próflokapartýinu sem fer fram á Úrillu Górillunni laugardaginn 19. maí næstkomandi og getur þú unnið miða með því að smella HÉR.