Þær eru aðeins tólf og átta ára, systurnar Lennon og Maisy Stella, þær eiga það sameginlegt að vera með hreint ótrúlega rödd og búa yfir miklum hæfileikum.
Á dögunum tóku þær upp magnað cover af laginu Call Your Girlfriend sem Robyn söng upphaflega en það má þó segja að þær séu að gera cover af coveri því að stelpurnar í Erato tóku upp nánast eins útgáfu af laginu á síðasta ári.
Það verður gaman að fylgjast með þessum ungu stelpum á næstunni
enda hreint ótrúlegir hæfileikar hér á ferð.