FM Belfast er íslensk hljómsveit, stofnuð í Reykjavík árið 2005. Meðlimir hljómsveitarinnar eru Lóa Hlín, Árni Rúnar, Árni Vilhjálmsson og Örvar Þóreyjarson.

Hljómsveitin hefur náð þó nokkrum vinsældum og hefur hún m.a. spilað á G! Festival í Færeyjum og á Hróarskelduhátíðinni í Danmörku.

Hér eru krakkarnir mættir með myndband við nýjasta lagið sitt, DeLorean en það var Magnús Leifsson sem sá um gerð myndbandsins.