Lopabandið er ný hljómsveit skipuð átta eldhressum krökkum frá Akureyri en þau eru öll fædd árið 1996.

Flest þeirra kunna á tvö hljóðfæri og hafa þau mest megnis verið að spila íslensk lög en eru að færa sig meira út í erlenda tónlist og þá einna helst poppið.

Hér flytja þau svokallað mashup en í því má m.a. finna lögin Glad You CameWild Ones og We Found Love.