Hann er aðeins sautján ára og er hreint ótrúlega efnilegur söngvari.
Bresk-Ástralski söngvarinn Reece Mastin hefur náð gífurlegum vinsældum eftir að hann sigraði þriðju þáttaröðina af Áströlsku X Factor keppninni sem fór fram á síðasta ári.

Reece hefur þotið hratt upp helstu vinsældarlista og skrifaði hann undir samning við Sony útgáfufyrirtækið.

Nýjasta lagið frá þessum unga og efnilega söngvara nefnist Shout It Out og má með sanni segja að það verði gaman að fylgjast með kappanum á næstunni.