Hér flytur Jorge ásamt sjö ára gamalli dóttur sinni, Alexu Narvaez hreint ótrúlegt cover af laginu I Won’t Give Up sem hjartaknúsarinn Jason Mraz söng upphaflega.

Saman kalla þau sig Reality Changers en með því vilja þau lýsa þeim árangri sem fjölskyldan hefur náð frá upphafi hennar, en Jorge er fyrsti fjölskyldumeðlimurinn af stórfjölskyldunni sem útskrifaðist úr menntaskóla og hélt svo áfram í háskóla eftir afar erfiða æsku, en fjölskylda Jorge’s bjó við mikla fátækt.

Það er hreint ótrúlegt hvað þessi feðgin hafa náð miklum árangri á stuttum tíma en þau hafa meðal annars komið fram i þáttunum hjá Ellen DeGeneres og Ryan Seacrest, en sagt hefur verið um þessi krúttlegu feðgin að þau séu ástæðan fyrir því að internetið var fundið upp en það eru hreint ótrúlegir hæfileikar hér á ferð.