Þetta er hreint ótrúlegt, fimm píanóleikarar sem spila á aðeins eitt píanó. Þeir kalla sig The Piano Guys og samanstenda þeir af fimm mönnum og eru það tveir þeirra sem spila á hljóðfærin en hinir sjá um ýmiss önnur atirði tengd myndböndunum.

Þeir hafa gert ansi mörg cover af lögum  hafa alltaf notast við fleiri en eitt hljóðfæri og þá aðalega píanó og selló. Einn daginn ákvöðu þeir hinsvegar að sameinast allir í eitt lag og spila einungins á píanó.

Lagið What Makes You Beautiful sem strákarnir í One Direction gerðu upphaflega varð fyrir valinu en útkoman er vægast sagt mögnuð enda ótrúlegir hæfileikar hér á ferð hjá þessum píanósnillingum