Söngvarinn á bakvið lagið Heartbeat sem hefur verið með vinsælli lögum hér á landi undanfarna mánuði er mættur með nýtt myndband við lagið Fire Fly.

Kappinn heitir réttu nafni Donald Glover og er fæddur í Kaliforníu í Bandaríkjunum, hann er aðalega þekktur á sviði leiklistarinnar og var m.a. einn af handritshöfundum 30 Rock þáttanna.

Á síðasta ári ákvað hann svo að snúa sér að alvöru að tónlistinni og skrifaði undir samning við Breska útgáfufyritækið  Glassnote Records. Hann tók sér upp listamannsnafnið Childish Gambino og gaf loks út sína fyrstu plötu í nóvember síðastliðnum sem fékk nafnið Camp, en lagið Fire Fly er nýjasta smáskífan af plötunni.