Splunkunýtt myndband við lagið What Are You Waiting For?, en það er nýjasta smáskífan af plötunni Trust Me sem hljómsveitin Dikta gaf út á síðasta ári.

Myndbandið fjallar um kappakstursbísljórann Benzino sem hefur verið nær ósigrandi eða þangað til að Dynamo Joe kemur til sögunnar en hann er nýr í bransanum og nær loks að sigra Benzino.

Það er Hrafn Garðarsson sem annaðist upptökur á myndbandinu en Helgi Jónsson sá um leikstjórn.