Nýjasta smáskífan af plötunni My Head Is An Animal sem krakkarnir í Of Monsters And Men gáfu út á síðasta ári en hljómsveitin hefur sem kunnugt er farið sigurför um heiminn og komið víða fram við ansi góðar móttökur.

Myndbandið sem hér um ræðir er við lagið Mountain Sound og var það tekið upp á sérstökum tónleikum sem hljómsveitin hélt í Hljómskálagarðinum í júlí, en Illusion sáu um gerð myndbandsins.