Annað tónlistarmyndbandið sem Steindi Jr. sendir frá sér í vikunni en myndbandið var frumflutt í lok fyrsta þáttarins í þriðju seríunni af Steindanum Okkar en hann var sýndur á Stöð 2 í gærkvöldi.
Lagið heitir Ég Dansa Það Af Mér og koma m.a. Helgi Björnsson, Jörundur Ragnarsson og Ólafía Hrönn fram í myndbandinu, en lagið var pródúserað af strákunum í StopWaitGo.