Spánverjinn knái Enrique Iglesias er hér mættur til leiks með sjóðheitt  lag ásamt hinum 25 ára gamla rappara Sam Adams.

Lagið sem heitir Finally Found You má finna á annarri tvítyngdu plötunni sem Enrique sendir frá sér en hún er væntanleg á næstunni, en þegar um tvítyngdar plötur er að ræða eru lögin á plötunni sungin á tveimur tungumálum.