Housemúsin Deadmau5 (Joel Thomas Zimmerman) er 31 árs gamall pródúser og plötusnúður. Allir house aðdáendur ættu nú að kannast við Deadmau5 þar sem hann hefur gefið út mörg lög sem hafa slegið í gegn, þar má nefna: Strobe, I Remember, Ghost N Stuff og mörg mörg fleiri.

Hér er hann búinn að fá með sér í lið söngvarann Gerard Way í þrusuflott lag! Þess má geta að þetta myndband er dýrasta myndband sem hefur verið gert fyrir house lag og er mjög flott og vel gert. Lagið heitir Professional Griefers og má finna það á plötunni > album title goes here < en hún er væntanleg þann 24. september næstkomandi.