Hér er á ferðinni nýtt lag með Valdimar Guðmundsson og félögum í hljómsveitinni Valdimar en hún hefur skipað sér stóran sess í tónlistarlífi íslendinga og er hún orðin ein af vinsælustu hljómsveitum landsins.

Lagið sem heitir Sýn er fyrsta smáskífan á annarri plötu strákanna en hún hefur fengið nafnið Um Stund og er hún væntanleg í október.