Strákarnir í hljómsveitinni Maroon 5 hafa komið með hvern hittarann á fætur öðrum og núna síðast lagið One More Nigh, en lögin eiga það öll sameginlegt að vera á plötunni Overexposed sem hljómsveitin sendi frá sér í júní.

Nýjasta smáskífan af plötunni kom hinsvegar út í dag og nefnist lagið Daylight og er það ansi líklegt að það nái miklum vinsældum sem og önnur lög frá hljómsveitinni.