Avicii, Nicky Romero, Kid Massive, Porter Robinson - I Could Be The Strong Unison (Newklear Bootleg)Siggi Helga eða Newklear eins og hann kallar sig er plötusnúður sem búsettur er á Neskaupstað og tekur hann hér lagið 
I Could Be The One með Avicii  og Nicky Romero og setur það í glænýjan búning með lögunum Strong með Kid Massive og Unison  sem Porter Robinson gerði upphaflega.

Mixin hans Newklear hafa vakið vægast sagt mikla athygli um heim allan en þau hafa verið spiluð á vinsælum útvarpsstöðvum víða erlendis og af mörgum öðrum stórum plötusnúðum við góðar undirtektir.

Lagið sem nefnist I Could Be The Strong Unison er að sögn Newklear það stærsta sem hann hefur sent frá sér og vonast hann eftir því að fá met hlustun, og stefnir jafnframt að því að bjóða upp á ókeypist niðurhal af laginu eftir 3000 hlustanir.