Justin Bieber - Right Here ásamt DrakeHinn 18 ára gamli söngvari Justin Bieber hefur ekki átt sjö dagana sæla undanfarið og hefur mikið verið í sviðsljósinu fyrir slæma hegðun sína, aðdáendum hans til mikils ama.

Hér er kappinn hinsvegar mættur með fjórðu smáskífuna af plötunni Believe sem kom síðasta sumar og er það enginn annar en rapparinn Drake sem er með Bieber í laginu sem nefnist Right Here.