Óli Geir RæktarmixPlötusnúðurinn Óli Geir gaf út fyrir ári síðan sitt fyrsta Ræktarmix og nutu þau strax gífurlegra vinsælda en á stuttum tíma hafa mörg þúsund manns sótt mixin sér að kostnaðarlausu, en þau eru orðin sjö talsins.

Nýjasta mixið er fyrir janúar og febrúar mánuð og er Óli í skýjunum yfir viðbrögðunum sem eru vonum framar og vonast hann til þess að nýjasta mixið komi sér einstaklega vel í ræktinni, skokkinu eða bara hvar sem er, en þú getur hlaðið því niður þér að kostnaðarlausu með því að smella hér.