Cahill og Kimberley Locke - Feel The LoveÞremenningarnir í Cahill eru meðal fremstu pródúsera í Bretlandi og hafa þeir hér tekið höndum saman ásamt söngkonunni og módelinu Kimberley Locke og fært okkur glænýtt lag sem ber nafnið Feel The Love.

Það er býsna líklegt að það muni hljóma á útvarpsstöðvum landsins á næstunni, en menn vilja að meina að lagið sem er ansi sumarlegt líkist laginu When Love Takes Over sem Franski plötusnúðurinn David Guetta og Kelly Rowland sendu frá sér árið 2009.