Nicki Minaj - High School ásamt Lil WayneÞað hefur verið nóg um að vera hjá söngkonunni Onika Tanya Maraj eða Nicki Minaj eins og hún kallar sig upp á síðkastið, en hún hefur ráðist í framleiðslu á snyrtivörum á borð við varalit og ilmvatn ásamt því að vera með sína eigin fatalínu sem Kmart hefur hafið sölu á.

Hér er þessi margrómaða söngkona með splunkunýtt myndband við lagið High School ásamt rapparanum Lil Wayne, en hún tilkynnti fyrir stuttu að hún hefur hafið tökur á þriðju plötunni sinni, en þó hafa engar fregnir borist af því hvert nafn hennar verður né hver útgáfudagurinn sé.