Sebastian Ingrosso og Tommy Trash - Reload ásamt John MartinSænski plötusnúðurinn og fyrrum Swedish House Mafia meðlimurinn Sebastian Ingrosso er hér mættur ásamt hinum 25 ára gamla pródúser Tommy Trash með glænýtt myndband við lagið Reload.

Félögunum fannst eitthvað vanta upp á verkið og fengu til liðs með sér söngvarann John Martin til að syngja inn á lagið, Ingrosso hafði starfað með honum áður, en John gerði ófá lög með Swedish House Mafia á sínum tíma.