Lady Gaga - Do What U Want ásamt R. KellyDrottningin Lady Gaga kemur til með að gefa út sína fjórðu plötu þann 8. nóvember næstkomandi og er lagið Do What U Want önnur smáskífan af plötunni.
Lagið er pródúserað af Paul Blair eða DJ White Shadow eins og hann kallar sig, en hann er tónlistarmaður sem kemur frá Ohio.

Paul leyfði Gaga að heyra lagið fyrst fyrir tveimur árum og hefur það nú verið gert opinbert, en Paul gerði einnig lagið Applause sem er eitt vinsælasta lagið á landinu í dag ásamt fleiri lögum á plötunni.