Martin Garrix & Jay Hardway – WizardVið greindum frá því fyrir hálfum mánuði síðan að hinn sautján ára gamli plötusnúður og pródúser, Martin Garrix hefði gefið út lagið Wizard ásamt Jay Hardway.

Nú er hinsvegar komið út myndband við lagið sem hefur verið umdeilt frá því að það kom út, en menn vilja meina að það sé ansi líkt laginu Animals sem færði Martin frægð og frama, og er það eitt af vinsælustu lögum ársins.