Let It Go - Frozen - Alex Boyé (Africanized Tribal Cover) Ft. One Voice Children's ChoirTeiknimyndin Frozen sem Disney gaf út fyrir jólin er ein sú vinsælasta frá fyrirtækinu frá upphafi, en hún hlaut gífurlega góða dóma um allan heim.
Myndin inniheldur frábæra tónlist og er lagið Let It Go í flutningi Idina Menzel það lag sem hefur orðið hvað vinsælast.

Fjölmörg cover eða endurgerðir frá hinum ýmsu aðilum af laginu hafa skotið upp kollinum á veraldarvefnum upp á síðkastið, og eru þau misgóð eins og þau eru mörg.
Coverið sem hér um ræðir er með hinum Breska  söngvara Alex Boyé sem á ættir sínar að rekja til Nígeríu, en hann fékk með sér til liðs hina tólf ára gömlu Lexi Walker og One Voice Children’s kórinn, og er nánast hægt að fullyrða að þetta sé flottasta útgáfan af Let It Go sem hefur verið gerð hingað til.