Hljómsveitin White Signal hefur starfað síðan vorið 2011 og hefur henni farið mjög vel fram á þessum stutta tíma. Hljómsveitin er skipuð Guðrúnu Ólafsdóttur og Katrínu Helgu Ólafsdóttur sem syngja og leika á hljómborð, Brynjari Guðlaugssyni gítarleikara, Snorra Erni Arnarsyni bassaleikara og Sólrúnu Mjöll Kjartansdóttur trommuleikara. Strax frá stofnun hljómsveitarinnar hefur hefur verið mikið að gera og hefur hún komið fram víða á Stór-Reykjavíkursvæðinu. Hljómsveitin er komin með rúmlega klukkustundar efnisskrá sem saman stendur af 10 frumsömdum lögum og u.þ.b 10 coverlögum. Einnig hefur hljómsveitin gert fjögur myndbönd og eru fleiri í vinnslu.

Facebook síða White Signal


Íslenskt Og Efnilegt