Ella Henderson - Hard WorkÞó að hún sé aðeins átján ára skipar hún sér sess sem ein vinsælasta söngkonan í heiminum í dag, en ævintýrið hjá Ella Henderson hófst allt saman árið 2012 þegar hún tók þátt í X Factor keppninni í heimalandi sínu árið 2012 og hafnaði þar í sjötta sæti.
Eftir það hefur hún aðalllega  verið að taka svokölluð cover eða endurgerðir af lögum eftir aðra þangað til að hún og Ryan Tedder, söngvari hljómsveitarinnar OneRepublic sömdu lagið Ghost í byrjun þessa árs, sem Ella gaf svo út í sumar og varð það strax afar vinsælt og náði meðal annars á toppinn á breska vinsældarlistanum.

Fyrsta platan sem Ella sendir frá sér, Chapter One kemur út í miðjum október og hefur hún nú þegar hlotið góða dóma hjá gagnrýnendum, en þriðja og jafnframt nýjasta lagið af plötunni sem við fáum að heyra nefnist Hard Work.