Asaf Avidan - Over My HeadAsaf Avidan er ísraelskur söngvari sem fæddur er í Jerúsalem árið 1980 og er hann einna hvað þekktastur fyrir lagið One day (Reckoning Song) og má í rauninni segja að það sé eina lagið með honum sem hlotið hefur almennilegar vinsældir á heimsvísu.

Nú er komið út nýtt lag með Asaf sem nefnist Over My Head en það er fyrsta smáskífan af væntanlegri plötu hans Gold Shadow, sem kemur út á næsta ári og verður spennandi að sjá hvort vinsældir hans munu koma til með að aukast með tilkomu plötunnar.