Britney Spears - Pretty Girls ásamt Iggy AzaleaLagið Pretty Girls markar að hluta til endurkomu söngkonunnar Britney Spears en hún hefur ekki sent frá sér lag í rúm tvö ár.

Lagið sem hér um ræðir var upphaflega ætlað breska stúlknahópnum Little Mix, en svo virðist sem þau áform hafi breyst og Britney fengin til að syngja lagið með aðstoð Iggy Azalea.