Þjóðhátíðarlagið - Haltu Fast Í Höndina Á MérÞað hefur eflaust ekki farið fram á mörgum að það sé hljómsveitin Sálin Hans Jóns Míns sem fékk það hlutverk að semja þjóðhátíðarlagið í ár, en hljómsveitin var stofnuð árið 1988 og hefur hún verið ein sú vinsælasta hér á landi allar götur síðan.

Lagið sem hefur fengið nafnið Haltu Fast Í Höndina Á Mér verður frumflutt á slaginu 10 á föstudaginn og verður hægt að hlusta á það hér á síðunni, en mikil tilhlökkun ríkir hjá mörgum fyrir að heyra þjóðhátíðarlagið hvert ár.