Galantis - Peanut Butter JellySvíarnir Christian Karlsson og Linus Eklöw úr Galantis eru án efa þekktastir fyrir lagið sitt Runaway (U & I) sem kom út í lok síðasta árs og hefur verið með vinsælli lögum hér á landi undanfarið.

Félagarnir hafa nú sent frá sér myndband við lagið Peanut Butter Jelly sem kom út fyrir nokkru, en það líkt og Runaway má finna á fyrstu plötu Galantis, Pharmacy sem kom út í byrjun júní og komst hún meðal annars á toppinn á Bandaríska Billboard listanum yfir vinsælustu raftónlistarplöturnar.