Deorro - I Can Be Somebody ásamt Erin McCarleyPlötusnúðurinn Deorro eða Erick Orrosquieta eins og hann heitir réttu nafni er maðurinn á bakvið lagið Five More Hours sem Chris Brown syngur og er afar vinsælt um þessar mundir.

Nýjasta lagið frá Deorro nefnist I Can Be Somebody og var það sérstaklega gert fyrir kvikmyndina We Are Your Friends sem frumsýnd verður hér á landi þann 11. september næstkomandi en það er Erin McCarley sem er með Deorro í laginu.