Fifth Harmony - I'm In Love With a MonsterFyrsta plata stúlknahópsins Fifth Harmony, Reflection hefur verið að fá fína dóma víðast hvar, en hún inniheldur meðal annars lagið Worth It sem hefur verið afar vinsælt undanfarið.

Stelpurnar voru að senda frá sér nýtt lag sem ber nafnið I’m In Love With a Monster en lagið er titillag teiknimyndarinnar Hotel Transylvania 2 sem frumsýnd verður hér á landi í lok september.