Elma Rut, Karin Sveinsdóttir, Rebekka Ýr og Margrét Valdimarsdóttir eru fimmtán ára stelpur úr Breiðholtinu og hafa mikla ástríðu af söng. Þær eru saman í bekk í Seljaskóla og hafa þær verið að syngja á hinum ýmsu uppákomum á vegum skólans og sungu þær meðal annars í atriði Seljaskóla í Skrekk, hæfileikakeppni grunnskólanna og bar atriðið sigur úr bítum.

Elma, Karin og Rebekka eru í söng- og leiklistarskóla Borgarleikhússins, Sönglist og vegnar þeim vel. Stelpurnar flyjta hér lögin Yellow með Coldplay og Someone Like You sem Adele gerði svo frægt. Aðalraddir syngja Elma og Karin, en um bakraddir sjá Rebekka og Margrét.